Welcome to Avis

Smárútur

Hentugir bílar fyrir fjölskyldur, vinahópa eða minni ferðahópa. Nóg pláss svo enginn ætti að þurfa að sitja undir töskunum. Helstu áfangastaðir og náttúruperlur Íslands er hægt að nálgast á smárútum. Njóttu Íslands, ásamt því að spara pening í bílaleigu. Því fleiri því betra.

Við bjóðum upp á smárútur sem henta minni hópum og aðrar sem henta stórum fjölskyldum sem ferðast með heilan helling af farangri. Hægt er að velja milli 7 manna, 9 manna eða 14 manna bíla.

Er því ekki málið að ferðast á sem þægilegastan máta og gera þessa ferð eftirminnilega? Skoðaðu úrvalið okkar af smárútum.

Sendibílar

Sendibílar Avis er þjónusta sem gerir einstaklingum og fyrirtækjum kleift að leigja sendibíla af ýmsum stærðum og gerðum til lengri eða styttri tíma. Hægt er að bóka sendibíla í Reykjavík og er úrvalið gott og leigutími mjög sveigjanlegur, eða allt frá 4 klst og upp í 36 mánuði. Jafnframt eru þeir mjög eyðslugrannir. Flotinn svarar þeim fjölbreyttu þörfum fyrir sendibíla til flutninga á búslóðum og vörum.

Litlir sendibílar eins og Renault Kangoo eru sérlega liprir og þægilegir í smáflutninga meðan stærri sendibílar líkt og Renault Master henta betur þegar flytja þarf þungan og fyrirferðarmikinn farm. VW Transporter sendibílar með kassa og lyftu eru einstaklega góður kostur til flutninga á stórum og meðalstórum búslóðum.

Til að bóka bíl í þessum flokki þarf að hafa samband við Þjónustuver Avis í síma 591 4000 eða á avis@avis.is