Avis og Zipcar
Zipcar - opnar margar dyr!
Nýverið tók Avis við Zipcar þjónustunni stærstu bíladeiliþjónustu heims (e. car sharing).Með Zipcar gefst fólki tækifæri til að fá aðgang að ökutæki á einfaldan máta - þegar hentar.
Með því að hafa Zipbíla fyrir utan fyrirtæki getur starfsfólk með auðveldu móti sótt fundi eða sinnt erindum án þess að fyrirtækið sjálft þurfi að eiga bílinn með öllum þeim kostnaði og tíma sem því fylgir. Með því að skrá starfsmann sem meðlim fær hann einnig aðgang að öllum Zipbílum í borginni. Með þessu móti hvetur fyrirtækið starfsmenn sína að velja bíllausan lífstíl og má því flokka sem staðgengil eða viðbót við samgöngustyrki til starfsfólks.
Þau fyrirtæki sem velja Zipbíla fá sérsniðin kjör að þeirra þörfum og reikningar sendast sjálfkrafa. Leigubílakvittanir, nótur og aðrar flóknar endurgreiðslur verða óþarfar. Svo ekki sé talað um allt annað vesen sem felst í því að reka bíl.
Sjá nánar á eftirfarandi slóð: HÉR