Langtímaleiga
|
Langtímaleiga Avis gerir ráð fyrir mánaðarlegri leigugreiðslu sem inniheldur leigugjaldið, tryggingar og bifreiðagjöld og þjónustu. Að auki fylgir 20.000 km akstur á ári og möguleiki á að skipta um bílaflokk á leigutíma.
Hvernig virkar langtímaleiga Einfaldast er að ræða við þjónustufulltrúa okkar um þarfir fyrirtækisins og para þær saman við það úrval bíla sem boðið er upp á til langtímaleigu. Þannig er hægt gera fyrirtækjasamning sem kemur til móts við raunverulega þörf fyrir bíl, velja þá þjónustu sem óskað er og semja um sérþarfir ef einhverjar eru. Einnig er hægt að senda beint inn til fyrirtækjasviðs okkar umsókn um fyrirtækjasamning með því að smella á "umsókn um fyrirtækjasamning" í listanum hér til vinstri. |
