|
Fyrir meira en 60 árum síðan tengdi Warren E. Avis, fyrstur manna, saman flug fólks í viðskiptaerindum og bílaleigu og lagði þannig grunninn að því heimsþekkta alþjóðlega fyrirtæki sem bílaleiga AVIS er í dag. Fyrsta bílaleiga AVIS opnaði í Detroit árið 1946 en í dag starfar fyrirtækið í 180 löndum víðsvegar um heiminn með yfir 6.100 leigustöðvar.
Frá upphafi og til dagsins í dag hafa einkunnarorð AVIS verið „We try harder“: Við gerum betur. Í þeim er fólgin sannfæring um að gott samband við viðskiptavini byggi á einbeittum vilja fyrirtækisins til þess að „gera betur“ bæði hvað varðar þjónustu og fagmennsku.
Hjá AVIS er stöðugt unnið að því að gera bókun á bílaleigubíl eins aðgengilega og einfalda og kostur er. AVIS er með fjölda leigustöðva um land allt sem þýðir að viðskiptavinir geta auðveldlega fengið bíl á einum stað og skilað honum á öðrum. Viðskiptavinir geta treyst því að AVIS er ávallt með gott úrval af nýjum bifreiðum.
Þjónustuver AVIS er opið alla daga frá kl. 8-18 og þjónustufulltrúar bóka bíl fyrir þig hvar sem er á landinu. Bókunarsími er 591 4000 og tölvupóstfang er avis@avis.is |